ég er Hákon!!...og er stoltur af því!

29.06.2008 00:17:18 / baberaham

nýja síðan mín!!

jæja, nú er mamma að verða búin að gera nýju síðuna mína fína og flotta!

slóðin er: www.hakonfreyr.bloggar.is

vonandi verðið þið duglegri við að kvitta en hérna!! :D


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.04.2008 18:53:12 / baberaham

síðasta bloggið hér!

vildi bara koma með síðasta bloggið hérna og svo kemur nýtt og flott blogg í sumar þegar mamma er komin með nýja vinnu og farin að ná reglulegum svefni! :haha:
en já, ég er orðinn svo rosalega stór að ég geri bara helst allt sjálfur, eins og reyna að klæða mig í sokkana og fara í skó og setja á mig húfu og fara úr öllum fötunum! 8| borða og drekka, klifra og ná í hluti sem ég ætti ekki að ná í.. og svo er ég alveg að fara að tala.. ég babbla ennþá svolítið mikið sem skilst ekki alltaf! :lol:
en já ég ætla nú ekki að hafa þetta lengra í bili en ef þið viljið heyra meira þá er um að gera að kommenta! :D


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.03.2008 10:27:58 / baberaham

vakinn af dvala!

hæhæ, ég held nú að það sé kominn tími á að maður láti aðeins vita af sér hérna! :lol:
ég er semsagt að verða 19 mánaða, og er orðinn um 85 cm á lengd og er ljóshærður, ennþá.
ég er hættur að sofa úti í vagni, þar sem það er erfitt að finna vagn sem er nægilega stór og mér þykir alltaf best að hafa nóg pláss þegar ég fer að lulla!
ég er farinn að borða nánast allt sem fyrirfinnst í ísskápnum, nema egg, silung og lax.. mér finnst það alveg afskaplaga slepjulegt!
Ég er rosalega duglegur við að prófa allt sem ég sé aðra gera, eins og lesa dagblöðin, liggja í sófanum með teppi ofaná mér eins og pabbi gerir alltaf og svonáttúrulega fara í tölvuna eins og allir, en ég má það víst ekki! :$
En nú verð ég barasta að hætta vegna þess að Eva Dís var að koma og ég þarf að fara að leika við hana!! það er svo gaman!! :D


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.06.2007 09:16:55 / baberaham

Ofnæmi

þá er það komið í ljós, að allan þennan tíma var ég með ofnæmi sem orsakaði þetta exem og fleiri smákvillum sem hafa verið að hrjá mig!

Ég er sem sagt með ofnæmi fyrir mjólk og eggjum! ..þannig að núna er ég kominn á strangt mataræði sem inniheldur ávexti, grænmeti, soya og eggja og mjólkurlausa grauta! ...ótrúlegt hvað egg eru í mörgu, þar sem egg eru ekki bara egg!!

 ég er orðinn mikið stærri og sterkari, og fljótari að komast ferðar minnar, hvort sem er á rassinum eða á fótunum (ef einhver heldur í hendurnar mínar)!!

vonandi förum við að fara í einhverja skoðun fljótlega, áttum að fara í 8 mánaða skoðun fyrir mánuði síðan, en ekkert hefur orðið af því þar sem ég er búinn að vera svo veikur reglulega allan mánuðinn!

en já, núna þarf mamma að stökkva þar sem allt er dottið í dúnalogn inní stofu, sem þýðir yfirleitt að ég sé að gera eitthvað af mér!! :D 


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.05.2007 12:00:56 / baberaham

tennur, labba, standa upp... lulla, leika, standa upp, labba, borða, labba, leika...

Vúhú!!! í gær stóð ég upp alveg sjálfur.. :haha: og svo settist ég niður sjálfur.. :lol: og stóð aftur upp... :haha: og þannig hélt ég áfram í svona hálftíma!! ...rosalega gaman!! :D og síðan þá er ég búinn að vera eins og eldibrandur útum allt hús að reyna að standa uppvið eitthvað sem er traustari en stóll... 8| sem enginn situr í :| ...þá renn ég bara! 8|

en núna er mamma að læra fyrir próf, og ég er að lulla svo hún geti lært.. en ég hef það sterklega á tilfinningunni að hún sé alveg til í að skríða inn til mín og lulla hjá mér!! :lol:

en já.. ég er kominn með 7 tennur!!! 8|  og mig klæjar svo rosalega í góminn.. og svo til að toppa þetta allt.. þá er mamma að reyna að hætta með mig á brjósti af því ég er alltaf að bíta hana! :$ þannig að ég er ekki sáttasti maður í heimi! :evil:

heyri í ykkur þegar ég er búinn að gera eitthvað fleira merkilegt!!  


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.05.2007 21:21:31 / baberaham

HÆ.... BÆ!!!

Núna er ég "officially" farinn að labba! ..ég þarf að vísu smá aðstoð frá tvem puttum svo ég fljúgi ekki á hausinn þegar ég missi einbeitinguna.. og renni ekki á rassinn í öðru hverju skrefi! :D

ég er hættur að drekka hjá mömmu minni á daginn, fæ bara sopa á morgnana og svo aftur rétt fyrir kvöldmat! 8|  ..sem mér persónulega lýst ekkert á, þar sem mömmusopinn er svo rosalega góður! :haha:

en ég hef ekki meiri einbeitingu núna, er FARINN!!! *skríð í burtu á ógnarhraða* ;) 


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.04.2007 16:04:04 / baberaham

SKRIÐDREKI!!!

jebb.. ég er officially orðinn skriðdreki!!

ég er rétt að skríða í 80 cm og kominn vel yfir 10 kíló.. :lol: er farinn að sitja "næstum" því alveg sjálfur, velti mér og sný á alla kanta og er svo farinn að reyna að lifta mér uppá hnén..  :klikk: þannig að  það er ekki langt í að ég fari að skríða!! :D

ég var greindur með ungbarnaexem á háu stigi um allan líkamann,  og lítið við því að gera nema maka kremi á 3-5 x á dag.. og þaraf einu sinni til tvisvar mildison- sem er by the way sterakrem 8|

Anna frænka, Eva Dís og Þröstur eru loksins flutt norður, þannig að núna hef ég leikfélaga á svipuðum aldri og ég!! :haha:  ..og mamma labbifélaga (Anna að labba með Evu Dís) þegar ég fer í vagninn!! 8)

en já.. ætlaði bara að henda einni færslu inn í tilefni sumarsins!!

              - Gleðilegt sumar!! :D


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.03.2007 12:48:04 / baberaham

Skoðun og sprauta góðan daginn!!

jæja.. loksins kom að því.. ég kom í "sex mánaða skoðunina" í dag, alveg að verða sjö mánaða.. og hvað haldiði að ég hafi verið stór? ..jújú, foreldrum mínum grunaði það alveg! ..75 cm og 9420 gr ..það er nú ekki langt í stóru tíuna!!! hehe.. en já ég er víst farinn að síga verulega í.. mamma meikar varla að halda á neinu fleira ef hún heldur á mér!!:lol:

en já.. ég er kominn með ungbarnaexem á hendurnar.. ekki farinn að klæja í það ennþá.. þannig að mamma er bara að bera á mig aloa vera kremið sem Anna Louise frænka gaf mér fyrir nokkrum mánuðum síðan, og það virkar alveg rosalega vel!:D

mamma er á fullu að gera fyrirlestur sem hún á að flytja eftir um 2 tíma.. hehe.. gangi henni vel að klára það með mig organdi og gargandi á athygli!! :haha: 

svo ætla ég bara að leyfa mömmu að halda áfram lærdómnum svo við getum farið í skólann á eftir.. ég ætla nefnilega að fara með, nema pabbi verði kominn heim áður en mamma þarf að mæta.. og svo erum við að fara í ungbarnasundið klukkan tíu mínútur í fimm.. það er sko ROSALEGA gaman..:haha:

sjáumst fljótlega.. ég lofa að blogga eitthvað áður en ég fer í átta mánaða skoðunina mína!! 8) 


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.03.2007 13:04:19 / baberaham

hæhæ dúllur!!

já góðan daginn.. ég ætlaði ekki að blogga fyrr en ég væri búinn að fara í 6 mánaða skoðunina mína en hún er á þriðjudaginn og ég bara varð að tjá mig aðeins.. mamma er í vinnunni og ég er hjá pabba heima og leika við hann!!:haha:

ég er sko orðinn stór!! ..mamma náði í málband og mældi mig á skiptiborðinu um daginn og þá var ég orðinn 75 cm.. og við höfum ekki hugmynd um hvað ég er orðinn þungur.. en ég er samt svo mjór og rosalega langur!! ..pabbi sagði í morgun að ég yrði örugglega 220 cm á morgun.. en ég held að hann hafi verið að djóka.. en mér fannst það samt fyndið!! í rauninni er allt fyndið þegar ég er þreyttur!! :lol: 

en já.. ég ætla að láta ykkur vita þegar ég er búinn að fara í skoðunina mína.. og þá set ég líka inn í töfluna hér til hliðar "svona stækka ég" ..rosa sniðugt!! 


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.01.2007 15:21:27 / baberaham

gleðileg jól og farsæla komandi páska!! :D

úff... langt síðan maður bloggaði síðast... ég er bara svo upptekinn af tánum mínum að ég bara sé ekki sólina fyrir þeim!!!8|
fór í ungbarnaskoðun í morgun og mældist 8725 gr og 72,1 cm!!!:D
Alveg rosalega stór og flottur!!:haha:
Fékk svo að skoða bók sem er með fyndnum augum og ég skoðaði hana vel og vandlega.. en svo kom þessi leiðinda hjúkka með sprautu og stakk mig í lærið... og ég bara "hvað er verið að trufla mig??" og svo hélt ég áfram að skoða bókina!!
Mamma og Pabbi eru svo í skólanum og Pabbi er að vinna fyrir afa í bústaðnum þannig að ég sé hann aðallega á kvöldin og um helgar!! :$
Vil síðan minna fólk á að kvitta fyrir sig.. það er svo leiðinlegt að sjá hvað það eru margir sem skoða síðuna en kannski bara einn sem kvittar... :(
hlakka til að sjá hverjir skoða mig!! :D


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.12.2006 07:37:42 / baberaham

góður dagur!

hæhæ.. ég er sko vakandi núna.. og held ég haldi því bara áfram bara svona til að vera skemmtilegur við mömmu..
en já ég hef frá mörgu að segja!
þann nítjánda nóvember vorum ég og Eva Dís frænka skírð í Akureyrarkirkju. Við vorum skírð af séra Svavari klukkan 16:00 og svo þegar það var búið og myndatakan fórum við heim til Önnu Guðrúnar, ömmu Evu Dísar!
Þar var sko glatt á hjalla, fullt af fólki mætt til að gæða sér á kökum sem margir voru búnir að standa sveittir yfir í nokkra daga.. samt, enginn sviti Í kökunum!!
ég fékk nú ekki að smakka, en mér er sagt að þetta hafi nú bara verið ágætar kökur!
Svo um kvöldið þegar fólk var farið, byrjuðum við að opna pakkana okkar! ..við gátum það nú ekki alveg sjálf, þannig að mömmur okkar og pabbar hjálpuðu okkur mikið!
við fengum ýmislegt og fullt af frábærum gjöfum, eins og föt og aftur föt, skeiðasett, silfurhylki undir fæðingarvottorðin okkar, og svo fleiri rosalega flotta silfurskrautmuni sem alltof langt mál væri að telja upp hér.. ásamt haug af seðlum.. sem fara náttúrulega beint inná lokuðu reikningana okkar, sem hafa 12% vexti á ári!

En síðan skírnin var búin og fólk hætt að koma í kaffi þá fór nú að róast hjá okkur og Eva Dís fór suður með mömmu sinni og pabba!
Við erum náttúrulega bæði búin að stækka heil ósköp síðan þá en það verður víst ekki staðfest alveg strax!

En ég segi bara góða nótt, því ég er orðinn svolítið þreyttur núna!!

» 1 hafa sagt sína skoðun

15.11.2006 14:24:46 / baberaham

ég á ammæli!!!! 3 mánaða!!

jey!!
ég fór í tilefni dagsins snemma að sofa í gærkvöldi og vaknaði um 8 leytið í morgun!!
svo fórum við í ungbarnaverndina að skoða mig í krók og kring og fá svo fyrstu sprautuna mína!!
ég mældist 67 cm og 7310 gr óggilega stór og læknirinn sagði að ég væri stór og sterkur strákur!!
en svo fékk ég sprautuna!
og hún var ekkert svo ógurleg! ..bara pínu sárt en svo var ég búinn að gleyma því um leið og læknirinn ullaði framan í mig!!
sjáumst!!

» 1 hafa sagt sína skoðun

11.11.2006 10:16:57 / baberaham

ég er stór, þreyttur strákur!!

ég þarf svo að fara að sofa aftur..:lol:
en langaði fyrst að segja ykkur hvernig gengur hjá mér!:P
það er allt á fullu að undirbúa skírnina okkar Evu Dísar, og við þurfum ekki að gera neitt!
það er bara allt gert fyrir okkur!!:haha:
en útí annað.. ég er að fara í næstu ungbarnaskoðun 15 nóvember! ..þá er ég orðinn 3 mánaða gamall! og ég get alveg lofað ykkur að ég verð búinn að stækka síðan síðast!! :D
en núna er ég alveg að sofna.. þannig að heyri í ykkur aftur á miðvikudaginn!!
og endilega kvitta því okkur þykir svo gaman að skoða hverjir hafa komið hingað!

» 2 hafa sagt sína skoðun

02.11.2006 15:02:19 / baberaham

HÆ!!

svefnpurka í dag!!!:o
var að vakna, og er þar með búinn að setja nýtt met í svefni!! ..13 tímar með hálftíma pásu!!! vaknaði þá, mamma skipti á mér og gaf mér og svo var ég sofnaður aftur!!!8|

en já.. skírnin nálgast óðfluga og ég stækka enn hraðar!! 8|8)
mér finnst rosalega fyndið þegar fólk er að fikta í kinnunum mínum og gera fyndin hljóð! þá fer ég sko bara að skellihlæja!!:lol:
svo finnst mér líka gaman að horfa á óróann í rúminu mínu.. hann er rosalega litríkur og fiskarnir eru með svo rosalega stór augu!!8|
en skemmtilegast finnst mér að vera á skiptiborðinu! ..það er eitthvað skrítið á veggnum fyrir ofan það sem er rosalega gaman að skoða!:haha:
en ég ætla að halda áfram að pína pabba! ..ég komst nefnilega að því að það eru sniðug hár á bringunni hans!! :klikk:

» 1 hafa sagt sína skoðun

29.10.2006 11:36:40 / baberaham

wúbbdídú

ég er vaknaður og pabbi skipti á mér.. sem var mikið stuð!
ég fékk að sofa uppí hjá mömmu og pabba í morgun.. vaknaði um átta og sofnaði síðan aftur á milli mömmu og pabba! :haha:
það á sem sagt að skíra mig sunnudaginn 19. nóvember með litlu frænku minni henni Evu Dís.. og ég er búinn að máta skírnarkjólinn sem virðist passa núna fínt.. en ég er einmittt núna að taka smá vaxtarkipp! :klikk: öllum til mikillar armæðu þannig að ég bíst við að mamma þurfi að leita að öðrum og stærri kjól!! :lol:
en.. það er svo rosalega gaman hjá mér núna að ég hef ekki tíma til að vera að tala við ykkur núna! ..verð að fá athygli foreldra minni óskerta!! 8)

                                               ...þangað til næst!!

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2